5006 Ella SH 28
Smíðaður í Hafnarfirði 1973. Eik og fura. 1,73 brl. 10. ha. Farymann vél.
Eigandi Matthías Björnsson Gíslabæ, Breiðuvíkurhreppi frá 31. janúar 1974. Báturinn hét Ingibjörg SH 190, 5006. Báturin var seldur 17. júlí 1975 Lárusi Ingibergssyni Akranesi, hát Rá AK 7. Seldur 22. mars 1977 Björgvini Þorvarðarsyni, Stykkishólmi, hét Ella SH 28. Seldur 25. apríl 1994 Hildibrandi Bjarnasyni, Bjarnarhöfn II, Snæfellsnesi, saman nafn og númer.
1996 var stofnað "Stórútgerðarfélag Mýramanna" (óskráð félag sem hafði það að markmiði að gera út á hamingju) sem Ásgeir Ásgeirsson og Halldór Brynjúlfsson heitinn stóðu að og kaupa þeir trilluna af Hildibrandi sama ár 1996 n.t.t. 15. september. Þá var komin Sabb 18 ha. vél í hana.
Árið 1997 er stýrishús endurnýjað og breytt frá fyrra útliti og nokkrar endurbætur gerðar á skrokknum svo og vél.
Var Ellan nú á Brákarsundi næstu sumur og réri "Stórútgerðarfélag Mýramanna" nokkrum sinnum á sumri til fiskjar undan Mýrum eða allt til ársins 2005.
Halldór Brynjúlfsson lést árið 2007 og fer þá eftirlifandi eiginkona hans Ásta Sigurðardóttir með hans hlut en Ásgeir Ásgeirsson ánafnaði Arinbirnir Haukssyni og Sigurði Halldórssyni sinn hlut árið eftir.
Árið 2009 eignast Rúnar Ragnarsson hlut Ástu í Ellunni og gerir hana klára á Brákarsund og er hún þar við festar það sumar.
Árið 2010 eignast Pétur Geirsson hlut Rúnar Ragnarssonar og enn er Ellan gerð klár á Brákarsundið og er þar um sumarið en ekkert var róið þessi sumur (2009 og 2010) vegna ástands bátsins.
Núvernadi eigendur eru, Pétur Geirsson, Arinbjörn Hauksson og Sigurður Halldórsson allir í Borgarnesi.
Til stendur að gera Elluna upp þegar færi gefst og er nú þegar búið að lagfæra og mála vélina.
Upplýsingar:
Íslensk skip, bátar, 3. hefti bls. 155 - Ingibjörg SH 190, 5006.
Grein úr mbl. Theodór höfundur greinarinnar sendi mér hana.
Arinbjörng Hauksson með aðstoð Theodórs Þórðarsonar, skfriflegar upplýsingar.
Ég myndaði Elluna þar sem ég sá hana í Borgarnesi 22. apríl 2012 s.l. Búið er að taka húsið af bátnum og vélina úr honum. Hér má sjá hvernig hún leit út, fleiri myndir í albúmi.
Ella SH 28, Borgarnes 22. apríl 2012
Vélin úr Ellunni. Ljósmynd: Arinbjörn Hauksson
Ellunni siglt um Brákarsund. Ljósmynd Arinbjörn Hauksson
Ella við legu í Brákarsundi, 28. júní 2009. Ljósmynd: Ásdís B. Birt með leyfi Ásdísar.
Hér að ofan eru þrjár myndir sem ég fékk sendar og hef fengið leyfi til að birta. Sabb vélin úr Ellu nýmáluð og flott. Þá er mynd af Ellunni þar sem henni er siglt um Brákarsund.
Að lokum er mynd sem Ásdís B tók af Ellunni við legu í Brákarsundi. Ef þið smellið á myndina þá opnast Flickr síða Ásdísar. Endilega kíkið á síðu Ásdísar, mikið af flottum myndum þar.
Theódór í Borgarnesi sendi mér þessa grein sem hann skrifaði í Morgunblaðið 27. júní 2009 og læt ég hana koma hér ykkur til ánægju, vona ég.
Innlent | mbl | 27.6.2009 | 19:28
Ella lífgar uppá Brákarsund
Rúnar Ragnarsson kemur Ellunni sinni fyrir á Brákarsundinu. mbl.is/Theodór
Trillan Ella lífgar nú á ný upp á Brákarsund í Borgarnesi og er óspart notuð sem myndefni hjá ferðafólki. Þessi mynd var tekin þegar.
Ellan er forláta trilla af gömlu gerðinni. Það voru þeir Ásgeir Ásgeirsson og Halldór heitinn Brynjúlfsson sem að keyptu trilluna af Hildibrandi frá Bjarnarhöfn árið 1996. Þegar búið var að skvera hana af árið eftir og setja m.a. á hana nýtt stýrishús, fékkst leyfi til að setja hana niður við gamalt ból á Brákarsundið undir Brákarbrú. Þar var góð festa í heddi af gömlu Eldborginni sem gerð var út frá Borgarnesi á sínum tíma.
Undanfarin tvö ár hefur fólki fundist eitthvað vanta á sundið enda hefur Ellan ekki verið sett niður frá því árið 2006 þar til núna og setur hún nú aftur skemmtilegan svip á sundið.
Trillan var upphaflega frá Stykkishólmi og var nefnd eftir það merkilegri og ákveðinni konu, að ekki þótti ráðlegt af breyta nafninu á henni þótt hún færðist á milli bæjarfélaga enda hefur fleyið reynst vel til frístundaveiða á "borgfiski" út undir Þormóðsskeri og Grænhólma á liðnum árum.
Morgunblaðið/Theodór.