Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|
14.03.2012 20:217295 Fákur ÍSÞegar ég fór að leita mér upplýsinga um þennan bát þá kom upp smá árekstrar með þeim upplýsingum sem ég fann. í ljós kom á svo virðist sem þessi bátur hafi borið tvö skipaskrárnúmer, 5955 og 7295. Þá er stærð þessara "tveggja" báta ekki sögð sú sama en á því geta verið skýringar. Gunnar Th. sem eitt sinn átti Fák segir þetta sama bátinn og eftir gagngerar lagfæringar hafi báturinn verið endurskráður og fengið nýtt skipaskrárnúmer. Gunnar sendi mér eftirfarandi upplýsingar: Skoðaðu hjá honum Jóni Páli. Hann birti mynd af Fáknum og í framhaldi sendi ég honum upplýsingar. Ég átti þennan bát á undan Tryggva og þá hafði hann allt annað skskrnr. (5955) Ruglingurinn varð þegar báturinn var endurskráður. Í 16. hefti ritraðar vestfirska forlagsins "Mannlíf og saga fyrir vestan" á bls. 10, í grein sem Hlynur Þór Magnússon færði í letur, segir Arnór Stígsson, Horni svo frá: "Frímann heitinn á Horni, föðurbróðir, smíðaði Fák en Jakob Falsson kom norður um tíma og aðstoðaði hann við smíðina. Þegar báturinn var fullsmíðaður var honum rennt á sjó niður brekkuna. Það var stór viðburður og mér afar minnistæður".
Hjá Siglingastofnun er báturinn afskráður 29. ágúst 2002 vegna stórviðgerðar.
Endurgerð bátsins var unnin í Bolungarvík við Ísafjarðardjúp árið 2005 af hagleiksmanninum Guðfinni Jakobssyni frá Reykjarfirði nyrðri. Í Morgunblaðinu 4. júní 2008 kemur fram að báturinn sé aftur kominn á skrá og heiti nú Fákur ÍS-5. Hann er þá í eigu Þorkels Sigmundssonar, Bolungarvík og að einhverju leyti gerður út frá Horni þar sem hann var byggður.
Sjá má af neðanskráðu að á siglingu sinni við Hornstrandir hefur báturinn borið fleira að landi en hann í upphafi var smíðaður til.
Ein af hrikalegust sjóorrustum seinni heimsstyrjaldarinnar var háð á hafinu á milli Íslands og Grænlands 24. maí 1941 . Þar sökkti þýska orrustuskipið Bismarck, 35.000 smálesta stórt, enska orrustuskipinu Hood, 42.000 smálesta skipi, með einu skoti sem hæfði skotfærageymslu skipsins. Hood sprakk í loft upp og með því 1300 manna áhöfn. Golfstraumurinn olli því að lík enskra sjóliða tók að reka á Hornströndum. Að beiðni yfirvalda fóru menn á Fáki ÍS-5 og söfnuðu saman líkum, sem á reki voru eða komin í fjöru og flutti báturinn þau að landi. Þar var smíðað utan um þessa ógæfusömu einstaklinga og þeim komið í vígða mold í kirkjugarði Furufjarðar. Mörgum árum seinna grófu Bretar upp fimm líkanna og fluttu heim til Englands en það sjötta var talið af frönskum manni og um það hirtu breskir ekki.
Ath. Í ritinu "Íslensk skip. Bátar" 2. hefti á bls. 90 er Fákur ÍS-162 (7295) skráður.
Báturinn er sagður smíðaður á Horni 1933. Ljóst er að þarna er um Fák ÍS-5 (5955) að ræða og er Ragnar Jakobsson, Reykjafirði sannfærður um að svo sé. Þrátt fyrir að mismunur sé á stærðartölum þessara báta þá segir það ekki alla söguna því alþekkt er að þessar tölur geta breyst frá einni mælingu til annarrar.
Upplýsingar:
Skrifað af Rikki R. |
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is