5216 Rannsý RE 18
Smíðaður árið 1973 af Eyjólfi Einarssyni í Hafnarfirði. Fura og eik. Vélin er Volvo Penta 35 ha. árg. 1988. Hét Sæfinnur KE 145. Eigendur Sverrir Einarsson, Leifur Einarsson, Sverrir Elentínusson og Kristján Júlíusson, Keflavík, frá 24. apríl 1973.
Þeir selja bátinn 23. febrúar 1979 Friðriki Guðmundssyni, Hafnarfirði, hét Jón Erling HF 26. Báturinn var tekin af skrá 17. nóvember 1986 en endurskráður 24. júní 1987.
Seldur 23. september 1992 Eyjólfi Einarssyni, Hafnarfirði, hét Bylgjan HF 26. Seldur 6. maí 1994 Halldóri Páli Halldórssyni, Keflavík. Báturinn heitir Bylgjan KE 17. Báturinn var skráður sem skemmtiskip 2005.
Held að það sé rétt hjá mér að nýverandi eigandi heiti Sigurður Helgason. Heitir Rannsý RE 18 í dag.
Önnur nöfn
Sæfinnur KE 145, Jón Erling HF 26, Bylgjan HF 26 og Rannsý RE 18.
Heimildir
www.sax.is
Íslensk skip, bátar, bók 2, bls. 161 - Sæfinnur KE 145
Rannsý RE 18, Reykjavíkurhöfn 13. september 2011
Rannsý RE 18 komin í nýjan lit. Hafnarfjörður 03. október 2015
Rakst á þennan við Hafnarfjarðarhöfn 03. október 2015 og eftir smá stund vildi ég meina að þetta væri Rannsý RE 18. Ég átti myndir af bátnum þegar hann var gulur og bar þessar myndir saman og get ekki séð annað en að þetta sé Rannsý. Ég veit ekki um hvort það hefur verið einhver breyting á eignarhaldi en þær upplýsingar munu þá koma síðar. Ef þú hefur einhverjar meiri upplýsingar um þennan bát endilega sendu mér línu.