Orion X Hamar SH hefur staðið við Kópavogshöfn. Ég smellti einni mynd af honum þar sem hann stóð á hafnarbakkanum.
Það mun hafa verið Þráinn Arthúrsson sem gerði upp trébátinn Orion sem að er 4,5 tonn smiðaður í Bátasmiðastöð Breiðfirðinga árið 1955. Fyrsta vél i þessum bát var af gerðinni Polyter og var aðeins 10 hp. Árið 1975 var sett í bátinn Volvo Penta og aftur var skipt um vél 1980 og þá sett Sabb 30 hp.
Mjög skemmtileg umfjöllun er hér
http://blogg.visir.is/tengill/2008/04/09/hamar/ þar sem Gunnar Th. slær á takkaborðið og lýsir helstu breytingum á bátnum.
Hér má sjá myndir af Orion
http://thorgeirbald.123.is/blog/record/409156/Í Íslensk skip, bátar eftir Jón Björnsson, bók 3 bls. 150 er sagt um þennan bát.
Smíðaður í Hafnarfirði 1955. Eik og fura. 3,8 brl. 20. ha. Sabb vél 1980.
Eigandi Sigurður S. Sigurjónsson og Guðmundur Sigurðsson, Hellissandi, frá 18. júlí 1961, þegar báturinn var fyrst skráður. Frá 19. mars 1969 var skráður eigandi Guðmundur S. Sigurjónsson, Hellissandi. Seldur 15. júní 1989 Pétri Sigurjónssyni í Grundarfirði. Báturinn hét Hamar SH 18 og var skráður í Grundarfirði 1997. Hamar var einnig SH 170, hvort það var á undan eða eftir veit ég ekki.
Orion, Kópavogur 20. febrúar 2011