Hér koma tvær myndir frá Húsavík af húsum sem eru horfin. Ýmsar verslanir voru í Klemmu í gegnum árin og man ég m.a. eftir fata- eða íþróttavöruverslun, sjoppa og raftækjaverslun svo eitthvað væri nefnt. Á þessu svæði sem Klemma var, er nú bílastæði að ég tel, en það sést þarna í norðausturhornið á Verbúðinni. Fyllt var uppí þetta skarð og ofan á verbúðinni er söluskáli Norðursiglingar.
Þegar ég var lítill fannst mér Skógargerði nánast vera uppi í sveit. Þarna neðan við húsið var Skógargerðislækurinn. Við lékum okkur oft við Skógargerðislækinn æskuvinirnir.
Þið fyrirgefið en ég man ekki hvenær myndin af Skógargerði var tekin.

Klemma. Húsavík 23. apríl 1993

Skógargerði. Húsavík