5493 Árni ÞH 127, tæplega 6 tonna línubátur sem var smíðaður 1961 í skipasmíðastöð Svavars Þorsteinssonar úr furu og eik. Bragi Sigurðsson eigandi bátsins gerir hann út á Húsavík. Bragi og Sigurður bróðir hans keyptu bátinn út Flatey árið 1970. Þeir gerðu bátinn út til ársins 1983 er þeir lögðu honum og keyptu sex tonna dekkbát frá Norðfirði. Þeir seldu þann bát árið 1985 og lét Bragi endurbyggja eldri bátinn og hefur gert hann út síðan.
Önnur nöfn: Samkvæmt upplýsingum úr Eyfirskri skipaskrá kemur fram að upphaflega hafi báturinn fengið nafnið Hafræna EA 42, hafi hann verið afturbyggður súðbyrðingur með lúkar, smíðaður fyrir Baldvin Ásmundsson og Heiðar Rafn Baldursson, Árskógsandi en þeir áttu bátinn í tæpt ár. Í febrúar 1963 fékk báturinn nafnið Bára ÞH 127 gerður út frá Flatey. 1982 fékk báturinn nafnið Árni ÞH 227 sem síðan var aftur breytt 1985 í Árni ÞH 127.
Heimildir:
Aflafréttir:
http://aflafrettir.123.is/blog/record/278041/ Eyfirsk skipaskrá:
http://www.aba.is/Default.aspx?modID=1&id=44&vId=75&img=1097 hér má lesa allt um skipasmiðinn Sigurgeir Svavar Þorsteinsson, bátana sem hann smíðaði og þá má sjá eitthvað af myndum af bátunum.
Skipamyndir Hafþórs Hreiðarssonar:
http://skipamyndir.123.is/blog/record/398521/ sem segir sínar heimildir vera úr Sögu Húsavíkur.
5493 Árni ÞH 127