Þær upplýsingar sem ég hef fengið um bátinn sem ég spurði um væri að þetta væri björgunarbátur, ekkert ósvipaður og hafi verið á Titanic. Þá var einnig nefnt að þetta gæti jafnvel verið snurpari af nótabát. Setti inn talsvert fleiri myndir af bátnum við aðeins breyttar aðstæður, nú allt hvítt, nýtt albúm sem heitir Bátur við Elliðavatn. Snjómyndirnar teknar 28.02.2009 en hinar voru teknar 26.02.2009. Eins og fyrr segir er þessi bátur skammt frá Elliðavatni en talsvert uppi á landi. Við gerðumst svo grófir að telja þetta jafnvel vera örkina hans Nóa, á strandstað. Ja, hvað vitum við, fyrst Titanic var komið til sögunnar því þá ekki alveg eins Örkin?

