Hér er ein af þessum myndum sem ég tók frá Álftanesinu þegar ég var þar. Fannst litirnir koma flott úr, Perlan í skugga og því dökk en fjöllin bleik. Set hér inn þrjár myndir frá því laugardag fyrir rúmri viku síðan 31.01.2009. Held áfram að hrella ykkur með myndir af Bessastöðum, líklega kominn tími til að setja möppu bara með myndum af Bessastöðum og aðra bara með Keili, sjá hvernig úrvalið er. Hugsa þetta aðeins...................búinn að hugsa þetta. Vinn að því að setja bara inn myndir af Bessastöðum svona rétt til að sjá hvernig þetta lítur út, eru þær allar eins eða er eitthvað úrval og breytileiki þó um sama staðinn sé að ræða. Er þetta eins og til var sáð, þ.e. að eiga mydnir af Bessastöðum frá nánast öllum sjónarhörnum og í öllum veðrum. Vinn að þessu. Kem til með að gera ýmsar aðrar breytingar á myndaalbúmunum og auðvitað fáiði að fylgjast með.

Myndin tekin 31.01.2009

Kuldalegir Bessastaðir. 31.01.2009

Sólsetur. 31.01.2009.