10.07.2007 01:16
Gott fólk, þá er ég búinn að setja slatta af myndum inn í Íslandsmöppuna mína. Mun halda áfram að bæta inn myndum næstu daga. Þá er ég að byrja að skanna inn myndir af slide myndum, eitthvað úrval og mun ég setja þær inn þar sem þær eiga við hverju sinni.
Ég benti á það að ég hef ekkert verið að mynda upp á síðkastið enda á ég erfitt með það þar sem sú lyfjameðferð sem ég er í núna gerir það að verkum að hendur mína skjálfa mikið þegar ég held á einhverju. Þetta þýðir að ég get ekki haldið á myndavél eins og staðan er. Hins vegar þá lagast þetta þegar þeir hafa fundið rétta lyfjaskammtinn og þá byrjar maður bara aftur á fullum krafti að mynda. Á meðan þá vinn ég í myndunum í tölvunni og þið fáið vonandi að njóta þeirra. Vona að þið hafið gaman af þessu, ég hef það alla vegna.
Þakka ykkur sem soðið síðuna mína, þið megið alveg láta vini og kynningja ykkar vita af þessari síðu og vonandi hafa þeir eitthvað gaman af að skoða þetta.
Rikki R.