Ljósmyndasíða Rikka Fuglar, gamlir bátar, mannlíf, íslensk náttúra eins og ég sé hana |
|||
Færslur: 2012 Júlí18.07.2012 21:39Ferðalag Bjarna 15. júlí 2012Fjölskyldan fór í smá ferðalag og höfðum einn gest með okkur, Bjarni fékk lítið að vita hvað væri framundan en hann átti samt að hitta útilegumanninn Sæmund, mjög vel menntaðan mann sem segði fátt. Ef hann fengist til að tala gæti hann sagt frá mörgu skemmtilegu. Elin Hanna, Sæmudnur og Bjarni. Þegar Bjarni hitti Sæmund var honum gerð grein fyrir að þetta væri skýringin á því hve fámáll Sæmundur væri og þá hefði hann verið búinn til í Sæmundarskóla og því sprenglærður. Næsti viðkomustaður var við Kleifarvatn. Elín Hanna og Bjarni skoða myndir og fleira á veggjum hellisins. Nóg er af hellum við Kleifarvatn. Sá stærsti þeirra, að ég held, hefur verið notaður í veislum o.fl. en hlóðir eru þar inni. Fólk hefur svo rist nöfn sín á veggi hellisins og jafnvel gert andlit. En hellisveggirnir eru úr sandsteini. Næsti viðkomustaður var Seltún. Litir, hverir, ferðamenn og fýla (segir Elína Hanna) af hverunum. Mæðgur sitja og virða fyrir sér fegurð litanna.............. ............meðan Bjarni skoðaði þetta betur. Eftir Seltún var farið í Herdísarvík. Þar fóru fram rannsóknir sem Bjarni og Elín Hanna tóku virkan þátt í. Dýptarmælingar á GB Túttunni. Bjarna vildi halda á krabba, en var ekki alveg sama í fyrstu Þakka þér fyrir skemmtilega ferð Bjarni og vonandi getum við endurtekið eitthvað í líkingu við þetta síðar í sumar. Fleiri myndir má sjá með því að smella á efstu myndina. Skrifað af Rikki R. 18.07.2012 21:29Litir náttúrunnarÁ ferð okkar 15. júlí s.l. fórum við m.a. í Seltún. Ég fæ aldrei nóg af að skoða litadýrðina þar. Eins og ég hef áður sagt hér þá er þetta klárt listaverk og þarna má finna að ég tel alla litaflóruna sem við þekkjum. Hér má sjá nokkur dæmi. Fifty shades of grey? Stutta útgáfan af bókinni:-) Næsta bók gæti heitið: Fifty shades of orange? Ýmsir litir. Fleiri litir. Skrifað af Rikki R. 15.07.2012 23:21Gamlir og góðir frá HúsavíkRakst á þrjár myndir af húsvískum bátum, Fanney ÞH 130, Sæborgu ÞH 155 og Þráni ÞH 2 á leið til hafnar. Ég ákvað að skella þeim strax hér inn mér og vonandi ykkur til ánægju. Gæðin eru ekkert sérstök en svona er þetta, verður ekki á allt kostið í þessum efnum.
Skrifað af Rikki R. 15.07.2012 21:43Rannsóknir við HerdísarvíkRannsóknir við Herdísarvík fóru fram í dag, 15. júlí 2012. Þær hafa staðið yfir lengur en ég var staddur á staðnum núna með myndavélina. Ég lánaði tvo í áhöfnina, Bjarna og Elínu Hönnu. Capitan Joe David stjórnaði rannsókninni. Dýptarmælingar fara fram og má geta þess að á sumum stöðum er allt að 7 metra dýpi þar sem mest er. Rannsóknir sem farið hafa þarna fram hafa sýnt fram á að í víkinni lifir m.a. koli þó enginn hafi verið veiddur í þassum rannsóknarleiðangri en búið var að finna þetta út og þurfti því ekki að skoða það nánar. Bogkrabbar virðast lifa góðu lífi. Þá er talsvert fuglalíf í kringum víkina m.a. tjaldar, stelkar, tildrur, æður, álftir, kríur, silfurmáfar, fýlar, þúfutittlingar o.fl. Þá sækja selir inn í víkina. Einn kíkti í heimsókn á meðan á rannsókninni stóð og sá ég hann ná sér í fisk og éta hann, náði því miður ekki myndum af því. Rannsóknunum verður gerð betri skil síðar.
Rannsóknarskipið GB Túttan leggur frá landi. Herdísarvík 15. júlí 2012
Dýptarmælingar, 15. júlí 2012
Rífandi gangur í Túttunni, 15. júlí 2012
Krabbar í gildrunni, 15. júlí 2012
Capitan Joe David kíkir á aflann, 15. júlí 2012
Kíkti á rannsóknarmenn en forðaði sér þegar hann sá aðfarirnar, 15. júlí 2012 Skrifað af Rikki R. 15.07.2012 20:51Bogkrappi/strandkrabbiFjölskyldan leit við í Herdísarvík svona rétt til að kíkja á tilraunaveiðar sem þar fara fram. Þarna er Joe David með GB Túttuna og hefur verið að dýptarmæla og nú það nýjasta að leggja krabbagildru og þá hefur hann einnig kíkt eftir fiski. Þegar ég dróg krabbagildrurnar í land í dag þá var slatti af kröbbum í gildrunum. Þarna var um að ræða Bogkrabba eða Strandkrabba eins og hann er líka kallaður. Ekki vissi ég nafn krabbans fyrr en heim kom og flett var á netinu þá kom þetta strax í ljós. Bogkrabbi/strandkrabbi, Herdísarvík 15. júlí 2012
Bogkrabbi, strandkrabbi, Herdísarvík 15. júlí 2012 Bogkrabbi (Carcinus maenas) (E) shore crab, European green crab. Bogkrabbi, einnig kallaður strandkrabbi hefur 5 pör gangfóta og fremsta parið myndar gripklærnar. Öftustu fæturnir eru að nokkru leiti flatir. Litur bogkrabba getur verið dökkgrænn og grár. Einnig er hann oft brúnn, grænleitur og gulur eða appelsínugulur (elstu dýrin). Á vissu stigi (oft ungviði) er hann með hvítum skellum. Skel bogkrabba getur orðið allt að 6 cm. að lengd og um 9 cm. að breidd. Bogkrabbann má þekkja á 5 göddum á hvorri hlið hans og 3 hnúðum á milli augna hans. Grein um bogkrabba má finna ef þú setur slóðina sem er hér neðan við inn í leitarvélina. 5 gaddar á hvorri hlið og 3 hnúðar á milli augna. Bogkrabbi einnig kallaður strandkrabbi Upplýsingar http://staff.unak.is/hreidar/Skjol/Sumarverkefni_2010_Krabbar_Halldor.pdf eftur Halldór Pétur Ásbjörnsson, Vannýttar auðlindir? Krabbar við Íslandsstrendur Skrifað af Rikki R. 11.07.2012 17:20Jónas FeitiHef séð þennan bát við leguból utan við Nauthólsvík. Reyndi að mynda hann frá landi. Þetta verður að duga en ég á eftir að komast nær honum síðar. 6701 Jónas Feiti Báturinn er opinn trébátur, 6 metra langur og þriggja metra breiður þar sem hann er breiðastur. Hann er með 38 ha. innanborðvél. Báturinn var sérstaklega smíðaður fyrir starfsemi Siglunes og tekur allt að 35 farþega. 6701 Jónas Feiti. 08. júlí 2012 Skrifað af Rikki R. 04.07.2012 21:47Gert klárt fyrir Bátadaga 2012Ólafur Gíslason var að gera Bjargfýling tilbúinn til fluttnings en hann er á leið á Bátadaga. Bátadagarnir hefjast laugardaginn 7. júlí klukkan 09:30 með siglingu frá Stykkishólmi. Sjá má nánar um dagskrána á vef Bátasafns Breiðafjarðar,
http://batasmidi.is/ Ólafur var að gera kerruna undir Bjargfýling klára svo báturinn yrði nú stöðugur á henni en hann er að leggja af stað í Stykkishólm og ætlar að taka þátt í Bátadögum 2012. Kerran gerð klár undir Bjargfýling fyrir Bátadags 2012. Hafnarfjörður 04. júlí 2012 Skrifað af Rikki R. 02.07.2012 23:50Oddur BA 12
Hér að neðan er grein sem ég fann um þetta slys. Vísir 28. Júní 1954 Fimm manns fórust með vélbáti á Breiðafirði s.l. föstudag. Vb. "Oddur" á leið úr Flatey í Múlasveit sökk með fimm manns. Átakanlegt slys varð á Breiðafirði s.I. föstudag, er vélbátur fórst með fimm manns, sem á honum voru. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Vísir hefur aflað sér um þenna válega atburð, í símtali við Flatey á Breiðafirði, en þaðan var báturinn, síra Lárus Halldórsson sóknarprest, og skrifstofu Slysavarnafélagsins, lagði vélbáturinn Oddur, BA12, af stað úr Flatey um kl. 11 f.h. s.l. föstudag, og var ferðinni heitið að Svínanesi í Múlásveit í Barðastrandarsýslu. Á bátnum voru fimm manns: Tveir skipverjar, þeir Gestur Gíslason, formaður, hálffimmtugur, og Lárus Jakobsson, um þrítugt, báðir úr Flatey. Farþegar voru þrír: Óskar Arinbjarnarson hreppstjóri frá Eyri í KolIafirði í Gufudalssveit, maður um sextugt, sem verið hafði til lækninga í Reykjavík, en var nú á heimleið. Guðrún Einarsdóttir, á fimtugsaldri og Hrefna Guðmundsdóttir, dóttir hennar,25-26 ára, frá Selskerjum í Múlasveit. Frá Flatey til Svínaness er talin um tveggja stunda sigling, en báturinn kom aldrei fram. Síðast sást til hans úr Hvallátrum, um það bil klukkustund eftir brottförina frá Flatey. Stinningskaldi var á norðan, er báturinn lagði af stað úr Flatey, og gekk á með hryðjum. Þó var veður ekki talið háskasamlegt. Síðan spurðist ekkert til bátsins, og þegar hann kom ekki aftur til Flateyjar, eins og ráð hafði verið fyrir gert, var farið að leita hans. í Skáleyjum fannst ýmislegt úr bátnum, svo sem vörur, er hann hafði haft innaborðs, árar og fleira lauslegt, og þótti því sýnt, hver afdrif hans höfðu orðið.
Gestur Gíslason, formaður á "Oddi",var ekkjumaður, en lætur eftir sig 3 börn ung. Lárus Jakobsson var ókvæntur, en bjó hjá aldraðri móður sinni og bróður á Flatey. Guðrún Einarsdóttir lætur eftir sig mann og dóttur. Um heimilisaðstæður Óskars Arinbjarnarsonar er Vísi ókunnugt. Mikill mannskaði er að fólki þessu, sem állt var vel látið, og hefur atburður þessi að vonum vakið söknuð og hryggð í byggðarlagi þess. Skrifað af Rikki R. 02.07.2012 21:25SnjóbíllRakst á þennan magnaða snjóbíl þegar ég var að eltast við báta á Geymslusvæðinu í Kapelluhrauni. Þó þetta sé ekki bátur þá fannst mér sjálfsagt að mynda tækið. Þarna stendur hann á dekkjum en ég tel að þessi eigi að vera á beltum. Gripurinn lítur bara þokkalega vel út. Fyrir ykkur áhugasama um hin ýmsu farartæki þá set ég inn mynd af þessum grip. Fleiri myndir af honum ef þið smellið á myndina. Skrifað af Rikki R. 02.07.2012 00:18Flatey 15-22. júní 2012Nú eru myndir frá Flatey komnar inn. Vona að þið hafið gaman af. Ég leita enn eftir nýjum sjónarhornum og stöðum sem ég hef ekki myndað þó það séu kanski ekki margir staðir sem ég hef ekki séð í Flatey. Sjón er sögu ríkari.
Skrifað af Rikki R. 01.07.2012 21:00"Sprengjuárás"Ég má ti að setja þessar þrjár myndir inn þó þær séu ekki í fókus. Þær sýna hins vegar hvað getur gerst sé maður of nálægt, eða þannig. Þann 21. júní var ég staddur úti í Flatey á Breiðafirði eins og svo oft áður. Ég ákvað að prófa að ergja kríurnar svolítið. Þetta var hluti af því sem gerðist. Eftir þessa "sprengjuárás" þurfti að fara að þrífa föt og græjur. Þrátt fyrir þetta þá sakna ég þess að hafa ekki fengið gat á hausinn en ég get bætt úr því síðar því ég á eftir að fara aftur í Flatey. Þá verður líklega gerð önnur sjálfpíningarskoðun á kríunni. Venjulega fæ ég nokkur göt á hausinn í svona ferðum og kem stundum blóðidrifin í Bræðraminni. En ég er sáttur við það ef ég næ einhverjum þokkalegum myndum. Skrifað af Rikki R. 01.07.2012 16:24Strandarvík ex Sævar ÞH5499 Strandarvík ex Sævar ÞH-136 Stærð: 6,78 brl. Smíðaður af Baldri Halldórssyni skipasmiðameistara, Hlíðarenda við Akureyri árið 1970. Fura og eik. Vél 45 ha. Petter. Afturbyggður súðbyrðingur með lúkar. Báturinn var smíðaður fyrir Hörð Þorfinnsson, Húsavík, sem átti hann í átta ár. Báturinn var seldur Bjarna Sigurðssyni og Sigurði Friðbjarnarsyni, Húsavík árið 1978. Frá árinu 1998 hét báturinn Gjafar ÞH-226 og þá í eigu Kristjáns Ben Eggertssonar, Húsavík. Þann 25. júní 2012 rak ég augun í bátinn á geymslusvæðinu á móts við Straumsvík og er eigandinn skráður Jón Pétur Líndal samkvæmt starfsmönnum svæðisins. Hvort þessi bátur fari aftur á sjó er ólíklegt miðað við útlit bátsins. Eftir að hafa lesið upplýsingar um þennan bát á vef aba.is áttaði ég mig á að ég ætti gamlar myndir af þessum bát sem Sólveig ÞH 226. Það leynist ýmislegt í gömlum myndum. Upplýsingar aba.is
Skrifað af Rikki R. 01.07.2012 14:08Auðbjörg, Stokkseyri6463 Auðbjörg HF-47
Stærð: 4,32 brl. Smíðaður árið 1962 á Hofsósi. Fura og eik. Súðbyrðingur. Afturbyggð trilla. Vél 16 ha. SABB. Báturinn var smíðaður fyrir Eggert Klemenzson, skipstjóra Skógtjörn á Álftanesi og að tilstuðlan bróður Eggerts, Guðjóns Klemenzsonar, sem var héraðslæknir á Hofsósi um 10 ára skeið. Nafnið á bátnum er eftir móður þeirra sem hét Auðbjörg Jónsdóttir. Þegar Auðbjörg HF-47 kom á Álftanesið var báturinn opinn með lágum gluggalausum lúkarskappa, bogadregnum að framan og þannig var hann til 1970 að lúkarinn var hækkaður og settir í hann gluggar. Eggert seldi bátinn 02. apríl 1975 til Hafnarfjarðar, til þeirra Ólafs H. Eyjólfssonar, loftskeytamanns og Eyjólfs Einarssonar, bátasmiðs en báða þessa menn þekkti Eggert. Þeir Ólafur og Eyjólfur breyttu bátnum, rifu frambygginguna af og notuðu hann þannig opinn fyrst í stað en smíðuðu svo á hann stýrishús að aftan. Eyjólfur hafði orð á að báturinn væri einstaklega vel smíðaður, kjölur sterklegur og aldrei hafi komið að honum leki. Bátinn áttu þeir, Ólafur og Eyjólfur, til ársins 1994 en seldu hann þá Ragnari Hjaltasyni, Hafnarfirði og Hafsteini Sigmundssyni væntanlega sama stað. Allt fram til ársins 1995 hét báturinn Auðbjörg HF-47 en 04. ágúst 1995 var báturinn seldur til Húsavíkur og er þar skráður sem Auðbjörg ÞH-302 en árið 1996 er hann aðeins skráður Auðbjörg ÞH. Eigandi að bátnum á Húsavík var Jóhann Hauksson, Laxárvirkjun 2, Suður-Þingeyjarsýslu.
Árið 2001 fór báturinn til Stokkseyrar og hét þar Auðbjörg ÁR. og var í eigu Ólafs Auðunssonar, sem breytti honum í frambyggðan bát í gamla frystihúsinu á Stokkseyri. Frá Stokkseyri fór báturinn 2002 til Reykjavíkur þar sem hann hét Auðbjörg RE. og var í eigu Böðvars Markan, pípulagningarmeistara í Mosfellsbæ og er hann seinastur manna skráður fyrir bátnum á skipaskrá. Báturinn hét Auðbjörg RE. er hann var tekinn úr rekstri og felldur af skipaskrá 21. febrúar 2008. Böðvar átti bátinn í það minnsta í þrjú ár en gaf hann þá til niðurrifs manni, sem Hörður hét en af Snarfaramönnum er kallaður Galdri. Hörður gaf síðan ónafngreindum manni bátinn til niðurrifs.
Í hverju það niðurrif var fólgið er ekki vitað en árið 2012 er bátinn að finna á geymslusvæði, sem er á móts við Straumsvík og er nokkuð víst að báturinn hefur farið í sína seinustu sjóferð. Heimildir: http://aba.is/?modID=1&id=64&vId=101 Eins og fram kemur í lok þessarar færslu hjá Árna Birni þá er Auðbjörg núna á geymslusvæðinu móts við Straumsvík. Í samtali mínu við starfsmann Geymslusvæðisins vita þeir ekki hver er eigandi bátsins í dag. Segja Auðbjörgu hafa dagað þarna uppi og það virðist ekkert bíða bátsins annað en kurlarinn. Það var nú ekki auðvelt að komast að bátnum til að mynda hann en hann er á kafi í drasli eins og þið getið séð. Þið getið séð fleiri myndir ef þið smellið á myndina. Skrifað af Rikki R. 01.07.2012 12:24HerdísarvíkVið hjónin skruppum í Herdísarvík í gær, 30. júní 2012, meðan á forsetakosningarnar stóðu yfir. Jói Davíðs hafði boðið þeim sem vildu að koma en hann ætlaði að vera með einhvern gjörning, ef svo má að orði komast. Veðrið var frábært og fólkið sem kom var einnig frábært. Myndavélin var á lofti svo og fimm kallar á sviffallhlífum eða hvað þetta heitir en þeir svifu með fjallinu. Fyrir þá sem ekki vita þá bjó Einar Benediktsson skáld m.a. í Herdísarvík og gaf hann Háskóla Íslands Herdísarvík 28. september 1935. Mikil saga er á bak við þennan stað og fengum við að heyra hluta hennar frá manni sem mætti halda að hafi lifað þessa tíma. Ég er auðvitað að tala um Jóa Davíðs. Í Herdísarvík var eitt sinn róið til fiskjar og talið að frá því það lagðist af hafi ekki verið settur bátur á flot við Herdísarvík. Ákveðið hafði verið að setja bát á flot og mæla dýpi lónsins og jafnvel renna fyrir fisk. Báturinn fór á flot og skipstjóri og vél.......stjóri fóru af stað. Smá vindur setti strik í reikningin þar sem báturinn gekk fyrir handafli var erfitt um vik. Þó náðist sá merki áfangi að prófa þær græjur sem til staðar voru og fyrsta mæling var tekin á dýpi lónsins við austurhorn á Hestaskeri, þar mældist dýpið 3,1 meter. Þar sem ekki var hægt að athafna sig á lóninu þá var ekki athugað með fiskigengd, það kemur síðar. Hugmyndin er að fara og klára þessar mælingar síðar og skrá niður á vísindalegan hátt. Eftir þennan vísindalega leiðangur var farið austurfyrir Herdísarvík, þar niður í fjöru, man ekki heitið á þeim stað. Þangað fór hluti hópsins og var slegið upp veislu til að halda uppá þennan merka árangur að bátur hafi verið settur á flot og upphaf vísindalegra rannsókna hófst. Ég vil þakka Jóa Davíðs og auðvitað öllum hinum fyrir samveruna. Þetta var frábær stund með góðu fólki. Smá myndasería hér og fleiri myndir í albúmi. Smellið á fyrstu myndina og þá getiði skoðað myndaalbúmið.
Skrifað af Rikki R.
|
Málsháttur dagsins Svo flýgur hver fugl sem hann er fiðraður !clockhere Rikki R Nafn: Ríkarður RíkarðssonFarsími: 862 0591Tölvupóstfang: rikkirikka@gmail.comAfmælisdagur: 24. septemberHeimilisfang: Breiðvangi 3, 220 HafnarfjörðurStaðsetning: HafnarfjörðurHeimasími: 565 5191Um: Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is