Þetta mun vera eftirgerð af bát Soffíu Jónsdóttur en fyrirmyndin var smíðuð af Gunnari Jónssyni skipasmíðameistara 1934.
Soffíubátur, smíðaður 1934. Fura, Súðbyrðingur.
Báturinn var smíðaður fyrir Soffíu Jónsdóttur, Staðarhóli gegnt Siglufjarðarkaupstað og var hann lengst af í hennar eigu. Bátinn greiddi Soffía með mjólkurpeningum. Árið 2009 var báturinn í vörslu Sjóminjasafns Siglufjarðar.
Ég var á ferði á Siglufirði þann 06.08.2013 og smellti þá nokkrum myndum af þessum bát sem er nákvæm eftirgerð af Soffíubátnum.
Eftirgerð af Soffíubátnum. Siglufjörður 06. ágúst 2013