Hér koma nokkrar myndir af Baldri við Flatey á Breiðafirði, að koma eða fara. Þannig er það öllum stundum.
Skarfurinn blessar för Baldurs, sem stefnir inn í þokuna. Flatey 25. júní 2016
Baldur í þokunni. Flatey 25. júní 2016
Baldur leggur af stað úr Flatey til Brjánslækjar. Flatey 26. júní 2016
Baldur siglir vestan við Klofning á leið í Flatey. Flatey 29. júní 2016
Baldur kemur til Flateyjar á fullri ferð. Flatey 29. júní 2016