Þetta dæluhús myndaði ég á leiðinni heim þann 22. apríl. Þegar nær var komið þá sá ég þennan líka flotta tréstokk. Þetta dæluhús er rétt hjá bæjunum Borg og Minni Borg. Dæluhúsið stendur við Kleifá. Þegar ég sá þennan stað í þessari ferð þá var það birtan sem heillaði mig. Allir þessu brúnu tónar sem spiluðu saman, sólin lágt á lofti, allt passaði flott saman fannst mér. Hér má sjá myndir af dæluhúsinu.
Dæluhúsið. 22. apríl 2012
Tréstokkurinn og dæluhúsið. 22. apríl 2012