24. ágúst 2009 kíkti ég niður á höfn. Þar sá ég að verið var að sjósetja Gnúp GK11 ex. Guðbjörg ÍS46, en hann hafði verið í slipp. Ég tók nokkrar myndir af því. Talsverður vindur var og því voru tveir dráttarbátar, Þróttur og Hamar, til aðstoðar við að ná Gnúp á flot og jafnframt drógu þeir hann upp að bryggju. Hvort Gnúpur var vélarvana eða hvað veit ég ekki? Hér má sjá eitthvað af myndum og fleiri eru svo í albúminu Skip og bátar.
Gnúpur GK 11 enn hálfur í kvínni. Hafnarfjörður 24. ágúst 2009
Þróttur stjakar við Gnúp svo hann fari ekki út í Kvína. Hafnarfjörður 24. ágúst 2009
Þróttur og Hamar gera sig klára til að draga Gnúp að bryggju. Hafnarfjörður 24. ágúst 2009
Allt gefið í botn. Gnúpur dregin að bryggju. Hafnarfjörður 24. ágúst 2009
Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.