Laugardagurinn 26. júlí voru margir bátar á ferðinni í Flatey. Hér má sjá nokkra báta sem voru á ferðinni þennan dag, í fallegu veðri. Fleiri myndir í Flateyjaralbúminu. Á efstu myndinni er stórskipið úr Bræðraminni. Þarna er stýrimaður Steinþór Einarsson, aðrir í áhöfn eru Arnar Bentsson og Tómas Eiríksson. Skipperinn Bent Einarsson var í landi að gera sig klárann.
Fæddur á Húsavík á því herrans ári 1961 og hef tekið ljósmyndir frá því ég var strákur. Aðaláhugamálið er að taka myndir af fuglum en þó mynda ég allt sem mig langar til að mynda eins og sjá má.