Gleðileg jólin gott fólk. Eitt af því sem gleður okkur í kringum jólin er sú hugsun að daginn er farið að lengja og sólin hækkar á lofti. Nýtt ár er framundan og vona ég að það gefi okkur öllum betri tíð með blóm í haga. Áramótaheiti mitt mun verða að taka meira af myndum á næsta ári og setja hér inná síðuna og með því vona ég að þið hafið jafnframt gaman af.