Skrapp norður um síðustu helgi. Tók nokkrar myndir í Aðaldalshrauni en þar eru haustlitirnir orðnir nokkuð sterkir. Sérstök birta var þegar ég var þarna á ferðinni. Nýbúið að slidda og sólin skein síðan í gegn, engin snjór á jörðu en allt blautt. Litirnir því mjög sterkir og þá var snjór ofan í miðjar hlíðar á Kinnafjöllunum eins og sjá má. Tók líka nokkrar berjamyndir, namm, namm. Kaus að setja allar þessar myndir inn í blómamöppuna.